| Náttúrufræðabraut |
|
Góður grunnur í raungreinum opnar margar dyr Með því að nýta sér alla möguleika, sem fjölbrautakerfið býður upp á í stærðfræði og raungreinum, opnast dyr að mörgum áhugaverðum námsbrautum á háskólastigi. Nemendur hafa möguleika á að byggja góðan grunn fyrir framhaldsnám, sem krefst góðrar undirstöðu í stærðfræði og raungreinum þar sem skólinn býður upp á marga áhugaverða valáfanga í þessum greinum. Náttúrufræðibraut er góður undirbúningur fyrir margar námsleiðir Nám á náttúrufræðibraut er skipulagt sem 8 anna nám og því lýkur með stúdentsprófi. Námi á náttúrufræðibraut er ætlað að veita nemendum góða, almenna undirstöðuþekkingu í bóklegum greinum með áherslu á sérsvið náttúruvísinda. Brautin býr nemendur undir framhaldsnám í háskóla í náttúruvísindum, stærðfræði og öðrum greinum sem byggjast á góðri undirstöðu í náttúruvísindum, s.s. heilbrigðisgreinum, verkfræði, tæknifræði og landbúnaðarfræðum. Þriggja ára náttúrufræðibraut Í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti er hægt að ljúka stúdentsprófi á náttúrufræðibraut á 6 önnum. Námið hentar nemendum sem sýnt hafa góðan árangur í námi í grunnskóla. Útbúin er sérstök stundaskrá fyrir nemendur sem ætla að ljúka námi á náttúrufræðibraut á þremur árum. Erlent samstarf nemenda í FB Fjölbrautaskólinn í Breiðholti hefur á undanförnum árum tekið þátt í Comeníus verkefni á vegum Evrópusambandsins. Í tengslum við þetta verkefni hafa nemendur FB t.d. farið til Þýskalands, Englands, Ungverjalands og Belgíu og erlendir nemendur hafa heimsótt skólann. Skólinn hefur einnig tekið þátt í European Classes í Belgíu, einu eftirsóttasta framhaldsskólaverkefni í Evrópu. |