Skip to content
Þú ert hér: Forsíða arrow Um skólann arrow Hlutverk og stefna
Hlutverk og stefna
1.1 Hlutverk framhaldsskóla og sérstaða Fjölbrautaskólans í Breiðholti
Hlutverk f­ramhaldsskóla er skilgreint í framhaldsskólalögunum sem sett voru á Alþingi ár­ið 1996. Þar segir eftirfarandi um almennt hlutverk framhaldsskóla:

- að stuðla að alhliða þroska allra nemenda svo að þeir verði sem best búnir undir að taka virkan þátt í lýðræðis­þjóðfélagi
- að búa nemendur undir störf í atvinnulífinu og frekara nám
- að leitast við að efla ábyrgðarkennd, víðsýni, frum­kvæði, sjálfstraust og umburðalyndi nemenda
- að þjálfa nemendur í öguðum og sjálf­stæðum vinnubrögðum og gagnrýninni hugsun
- að kenna þeim að njóta menningarlegra verðmæta og hvetja til stöðugrar þekkingarleitar

Markmið skólans eins og annarra framhaldsskóla er bundið í lögum, reglugerðum, reglum og aðalnámskrá framhaldsskóla. Skólinn býður upp á fjölbreytt nám á fram­haldsskólastigi og höfðar til mjög margra og ólíkra hópa. Námsframboð skólans er svipað í dag- og kvöldskóla. Skólinn leitast við að þjóna nemendum og bjóða fram fjöl­breytt nám sem höfðar til mjög fjölbreytilegs nemendahóps. Í boði er metnaðarfull hraðleið til stúdentsprófs fyrir góða námsmenn, almennt bóknám með fjölbreytilegu sjálfsvali nemenda á kjörsviðsgreinum bóknámsbrautanna, upplýsinga- og tækninám, list­nám og verknám sem uppfyllir kröfur og þarfir atvinnulífs eins og best verður á kosið. Fjölbrautaskólinn í Breiðholti hefur einnig lagt grundvöll að mjög farsælu starfi í sérdeildum fyrir fatlaða. Námsbrautir skólans fylgja skipulagi og markmiðum aðal­nám­skrár framhaldsskóla en skólinn nýtir sér það svigrúm sem aðalnámskrá heimilar. Náms­brautir starfsnáms eru í sífelldri endurskoðun og mega nemendur gera ráð fyrir því að námskrár breytist á námstímanum. Almennt gildir sú regla að nemendur fylgja þeirri námskrá sem þeir innritast eftir – nema um annað sé samið. Fjölbrautaskólinn í Breiðholti leggur á það áherslu að áfanga- og fjölbrautakerfið fái að njóta sín eins og kostur er nemendum til framdráttar og hagsbóta í áframhaldandi námi og störfum.

Í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti er lögð áhersla á að bjóða fram starfskrafta og þjón­ustu vel menntaðs starfsfólks. Skólinn leggur áherslu á öflugt umsjónarstarf með nem­endum, skilvirka upplýsingastefnu þar sem allt starfsfólk skólans, nemendur og for­eldrar þeirra eiga greiðan aðgang að mikilvægum upplýsingum um skólastarfið, fag­lega náms- og starfsráðgjöf, skilvirkt forvarnastarf og foreldrasamstarf. Skólinn leggur áherslu á að meta skólastarfið á skilvirkan hátt með áherslu á að auka gæði starfsins eins og best verður á kosið.

Almennan­ fyrirvara verður að gera á möguleikum skólans til þess að sinna öllum verkefnum á þann hátt sem hann kýs þar sem svigrúm skólans er háð fjárveitingum og aðstöðu sem honum er búinn.

Stefna Fjölbrautaskólans í Breiðholti er að:

- bjóða nemendum sínum faglega og góða kennslu
- skapa nemendum góð skilyrði til náms
- undirbúa nemendur undir frekara nám
- undirbúa nemendur undir krefjandi störf í atvinnulífi
- gera kröfur til nemenda um ástundun og ræktarsemi í námi
- auka metnað nemenda og hvetja þá til þess að ná góðum árangri í námi
- stuðla að auknum þroska hvers einstaklings með því að bjóða fram viðfangsefni við hæfi – eins og kostur er
- auka hæfni nemenda til sjálfstæðra og vandaðra vinnubragða
- efla með nemendum gagnrýna og skapandi hugsun
- efla áhuga og skilning nemenda á umhverfi sínu og samfélagi og hvetja þá til þátttöku í lýðræðislegu starfi
- glæða skilning og áhuga nemenda á þjóðlegum og menningarlegum verðmætum
- rækta með nemendum vilja til að eiga jákvæð samskipti við aðra og sýna þeim tillitssemi og umburðarlyndi

Í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti er lögð áhersla á að þjóna mjög breiðum hópi nemenda og bjóða fjölbreytt nám:

- Bóknámsbrautir til stúdentsprófs – úrval kjörsviðsgreina
- Upplýsinga- og tæknibraut til stúdentsprófs
- Listnámsbraut með myndlistakjörsviði.
- Listnámsbraut með textíl- og hönnunarkjörsviði.
- Húsasmíði
- Rafvirkjun
- Sjúkraliðabraut
- Snyrtibraut
- Handíðabraut
- Viðskiptabraut
- Fjölbreytilegt viðbótarnám til stúdentsprófs að loknu list- og verknámi
- Almenna námsbraut
- Starfsbraut fyrir fatlaða nemendur
 
Austurberg 5 | 111 Reykjavík | Sími 570 5600 | Símbréf 567 0389 | Tölvupóstur: Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það

Kynntu þér


Upplýsingaskjár

Skrifstofa

Vefpóstur

Inna : Nemendur

Dreifnámsvefur

innritunkvoldskoli.gif

GRÁR KASSI

Sérðu GRÁAN kassa og ekki efsta hluta síðunnar. Smelltu þá hér.