|
Frá haustönn 2007 verður skipulagt nám fyrir
afreksíþróttafólk framtíðarinnar í handknattleik, knattspyrnu og
körfuknattleik í boði við Fjölbrautaskólann í Breiðholti.
Þetta er kjörið tækifæri fyrir afreksíþróttafólk
að tengja saman nám og íþróttir. Nemendurnir munu fá þrjár æfingar á
viku á skólatíma undir stjórn frábærra þjálfara.
Eingöngu verður um einstaklingsþjálfun
að ræða, en nemendurnir munu æfa áfram og keppa með sínum
íþróttafélögum. Æfingarnar koma í stað allrar verklegrar kennslu í
íþróttum í skólanum. Afreksíþróttanemendur geta stundað nám á öllum brautum skólans. Kröfur til afreksíþróttanemenda í FB:
- Nemendur verða að vera efni í afreksfólk í íþróttum. Þeir þurfa að fá meðmæli frá íþróttafélagi.
- Gerð er krafa um að nemendur hafi 95% skólasókn. Nemendur munu fá leyfi fyrir keppnisferðum.
- Nemendur þurfa að standast eðlilega námsframvindu – ljúka u.þ.b. 15 einingum á önn.
- Afreksíþróttanemendur í FB mega ekki nota áfengi, tóbak eða önnur vímuefni.
- Allir sem fá inngöngu í afreksíþróttir í FB skrifa undir samning með þessum reglum.
- Afreksíþróttanemendur fá sérstakan umsjónarkennara sem fylgist með framvindu náms hjá þeim og aðstoðar þar sem við á.
- Hver nemandi greiðir 50.000 krónur aukalega á önn fyrir að vera þátttakandi í þessu afreksíþróttanámi.
Umsóknareyðublað fyrir þá sem vilja sækja um afreksíþróttanám í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti er hægt að nálgast hér. Nemendur þurfa að prenta eyðublaðið, fylla það út og fara með það til síns íþróttafélags og koma því svo á skrifstofu FB.
Ekki er hægt að sækja um afreksíþróttanámið rafrænt.
ATHUGIÐ að eyðublaðið er á PDF formi og því verður að vera búið að setja upp Adobe Reader á tölvuna ykkar.
Smellið hér til að ná í Adobe Reader
|