Skip to content
Þú ert hér: Forsíða arrow Um skólann
Um skólann
Fjölbrautaskólinn í Breiðholti Fjölbrautaskólinn í Breiðholti er fyrsti fjölbrautaskólinn á Íslandi en hann hóf starfsemi sína 4. október árið 1975. Nú stunda u.þ.b. 1200 nemendur nám í dagskóla, 800 í kvöldskóla og um 1000 við Sumarskólann í FB sem rekinn er í húsakynnum skólans. Aðsókn bæði að kvöldskóla og dagskóla hefur aukist jafnt og þétt og er FB nú einn fjölmennasti framhaldsskóli landsins. FB starfar eftir áfangakerfi og er skólaárinu skipt í tvær átján vikna annir. Öllu námi er skipt í áfanga sem hafa mismunandi vægi eða einingar. Byrjunaráfanga í íslensku, stærðfræði, dönsku og ensku má taka á mismunandi hraða.

Námsframboð.
FB er í raun margir skólar undir sama þaki. Námssviðin eru mörg og hvert þeirra er í reynd sérstakur skóli þó að þau tengist og njóti góðs af framlagi annarra sviða. Sum svið veita réttindi eftir eins eða tveggja vetra nám en stúdentsprófi má ljúka á öllum sviðum skólans, að jafnaði á fjórum árum. Í dag eru námsbrautirnar við FB 27 talsins.


Sérstaða.
Í könnun sem gerð var á meðal nemenda FB kom í ljós að rúmlega 50% þeirra höfðu sótt um skólavist í FB vegna ákveðins náms sem var í boði við skólann. Í boði er ýmislegt nám sem ekki er annars staðar. Sérstaða FB felst einkum í eftirfarandi námsbrautum: Listnámsbraut, handíðabraut, upplýsinga- og tæknibraut, snyrtibraut, sjúkraliðabraut, fjölmiðlabraut, íþróttabraut og starfsbraut fyrir fatlaða.


Þjónusta við nemendur.
Margvísleg þjónusta stendur nemendum FB til boða. Sérmenntaðir námsráðgjafar starfa við skólann, hjúkrunarfræðingur, forvarnarfulltrúi og félagsstarfastjórar. Stórt og gott bókasafn er við skólann, tölvuver, stærðfræðiver o.fl. Þá hafa nemendur til ráðstöfunar mötuneyti, stóra félagsaðstöðu auk þess sem bóksala og sjoppa er rekin í skólanum.


Félagslíf.
Öflugt félagslíf er nauðsynlegt hverjum skóla og á það ekki síst við um fjölmennan áfangaskóla eins og FB. Í áfangakerfi tilheyra nemendur ekki ákveðnum hópi eins og í bekkjarkerfi en hins vegar hafa þeir tækifæri til að kynnast fleiri samnemendum sínum. Félagslífið gegnir mikilvægu hlutverki varðandi samskipti við aðra nemendur og getur verið lykill að því hvernig nemanda líður í skólanum og hver félagsleg staða hans er.

Nemendur eiga kost á að vera meðlimir í Nemendafélagi FB en stjórn þess er kosin til eins árs í senn. Á vegum nemendafélagsins er rekin bóksala og mötuneyti og auk þess sér félagið um félagsaðstöðu nemenda í Undirheimum. Innan nemendafélagsins eru starfræktar tíu nefndir, hver með sína sérstöðu. Þær eru: Undirheimanefnd, ritnefnd, veggblaðsnefnd, árbókarnefnd, leiklistarnefnd, listafélagið Moli, skemmtinefnd, videónefnd, árshátíðarnefnd og íþróttanefnd. Mikilvægt er fyrir nemendur að taka þátt í félagslífi skólans frá upphafi skólavistar sinnar. Þátttaka í félagslífi er ómetanleg reynsla og gott veganesti fyrir framtíðina.


Kvöldskóli.

Við Fjölbrautaskólann í Breiðholti starfar kvöldskóli og er þar boðið upp á nám á flestum brautum skólans. Þar eru gerðar sömu námskröfur og í dagskóla en kennslustundir eru í allflestum tilfellum helmingi færri. Innritun fer fram í upphafi hverrar annar og er alltaf auglýst í fjölmiðlum. Sumarskóli. Undanfarin ár hefur Sumarskólinn í FB verið starfræktur í húsakynnum FB. Við Sumarskólann stunda rúmlega 400 nemendur nám. Boðið er upp á 50 áfanga.

Í Fjölbrautastkólanum í Breiðholti er lögð áhersla á að þjóna breiðum hópi nemenda og bjóða fjölbreytt nám:
  • Bóknámsbrautir til stúdentsprófs
  • Upplýsinga- og tæknibraut til stúdentsprófs
  • Listnámsbraut með myndlistarkjörsviði
  • Listnámsbraut með textíl og hönnunarkjörsviði
  • Húsasmíði
  • Rafvirkjun
  • Sjúkraliðabraut
  • Snyrtibraut
  • Handíðabraut
  • Uppeldisbraut
  • Viðskiptabraut
  • Fjölbreytilegt viðbótarnám til stúdentsprófs að loknu list- og verknámi
  • Almenna námsbraut
  • Starfsbraut fyrir fatlaða nemendur
 
Austurberg 5 | 111 Reykjavík | Sími 570 5600 | Símbréf 567 0389 | Tölvupóstur: Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það

Kynntu þér


Upplýsingaskjár

Skrifstofa

Vefpóstur

Inna : Nemendur

Dreifnámsvefur

GRÁR KASSI

Sérðu GRÁAN kassa og ekki efsta hluta síðunnar. Smelltu þá hér.