Skip to content
Þú ert hér: Forsíða
Opið hús 11. mars

Fimmtudaginn 11. mars verður opið hús í skólanum frá kl. 17 - 19 og eru allir hjartanlega velkomnir.

Sérstaklega bjóðum við 10. bekkinga velkomna með foreldrum sínum til að skoða skólann og aðstöðuna.

Stjórnendur skólans, náms- og starfsráðgjafar, kennslustjórar, kennarar og nemendur verða á staðnum til að svara fyrirspurnum og sýna gestum skólann.

Leikfélag skólans mun sýna kafla úr leikritinu kl. 17:30 og 18:30 í salnum.

 

Lesa meira...
 
Leiksýning ársins

Í framhaldi af sæludögum þann 10. mars næstkomandi verður leikritið Frumskógarlögmálið frumsýnt í glæsilegum sal skólans. Leikstjórn er í höndum Þórunnar Ernu Clausen. Leikfélag NFB fékk Bjartmar Þórðarson til þess að skrifa fyrir sig handrit að leikriti. Eftir mikla hugmyndavinnu skrifaði Bjartmar leikritið sem byggir að hluta á handriti eftir Tinu Fey.

Leikritið fjallar um systkini sem flytja til Íslands frá Svíþjóð og aðlögun þeirra að íslenskum skóla. Í skólanum kynnast þau dæmigerðum stereotýpum og hvernig þær haga sér í goggunarröðinni í skólanum. Leikritið er gamanleikur þar sem ýktur veruleiki og afleiðingar eineltis setja mark sitt á systkinin frá Svíþjóð.

 

Lesa meira...
 
Vinnustaðanám sjúkraliða á haustönn

Umsóknum um vinnustaðanám sjúkraliða á haustönn 2010 þarf að skila í síðasta lagi 15. mars til Helgu Helgadóttur kennslustjóra eða í hólf hennar nr. 21.

Eyðublöðin eru hér á heimasíðunni undir Sjúkraliðabraut.

 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Úrslit 1 - 4 af 141
Austurberg 5 | 111 Reykjavík | Sími 570 5600 | Símbréf 567 0389 | Tölvupóstur: Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það

Upplýsingaskjár

Skrifstofa

Vefpóstur

Inna : Nemendur

Dreifnámsvefur

Kynning á FB

pastarchives.jpg

 

frumskogur.jpg

 

User Menu