Næstkomandi fimmtudag, 22. september verður Fræðsludagurinn. Fjölmargt spennandi er í boði og kennarar hafa kappkostað við að bjóða nemendum upp á góðan námsstuðning og áhugaverðar ferðir, fyrirlestra og íþróttaiðkun. Sendur hefur verið út póstur til allra nemenda og forráðamanna þeirra þar sem annars vegar nemendur eru hvattir til að skrá sig sem fyrst og hins vegar bent á hversu gott tækifæri þetta er fyrir nemendur. Nemendur ská sig á saeludagar.vu2016.carl.1984.is.