Í hádeginu í dag var skrifað undir samstarfssamning við World Class líkamsræktarstöðina sem staðsett er í Breiðholtslaug. Það voru þau Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir, skólameistari FB og Ólafur Jóhannesson, stöðvarstjóri Breiðholtsstöðvarinnar sem undirrituðu samninginn á kennarastofu FB. Samningurinn felur í sér afsláttarskjör fyrir bæði starfsmenn og nemendur. Nánari útfærsla þessara kjara verður kynnt á næstu dögum.