| Rafvirkjabraut |
|
Ertu vel tengdur? Rafiðnadeild hefur verið starfrækt í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti síðan 1976 með grunnnámi rafiðna og framhaldsnámi fyrir rafvirkja í dagskóla og kvöldskóla. Verksvið rafvirkja Störf rafvirkja tengjast flestum sviðum nútíma lífs. Auk hefðbundinna nýlagna og viðhalds á eldri lögnum vinna rafvirkjar við margs konar sérhæfðar lagnir svo sem tölvulagnir, lagnir fyrir viðvörunarkerfi, dyrasíma og kallkerfi ásamt uppsetningu á loftnetskerfum og viðhaldi þeirra. Nám í rafvirkjun Grunnnám rafiðna er tveggja ára nám, 80 einingar, og er sameiginlegur grunnur fyrir: Kvikmyndastjórn, rafeindavirkjun, rafveituvirkjun, rafvélavirkjun, rafvirkjun og símsmíði. Nám í rafvirkjun tekur eitt og hálft ár að lokinni grunndeild og er námið bæði verklegt og bóklegt. Ef námið er tekið allt í skóla þá er það 60 einingar að lokinni grunndeild og síðan 24 vikna starfsþjálfun. Ef neminn fer á samning hjá meistara í tvö ár er námið 35 einingar eftir grunndeild auk 48 vikna starfs-þjálfunar. Síðan fer neminn í sveinspróf. Framhaldsmenntun Af rafvirkjabraut er hægt að taka stúdentspróf og fara síðan í háskólanám. Einnig er hægt að fara í meistaraskóla og gerast sjálfstæður atvinnurekandi. Stýringar Stór þáttur í störfum rafvirkja er vinna við alls konar stýringar í iðnaði og heimahúsum, þar sem unnið er meðal annars með iðntölvur og hússtjórnar-kerfi ásamt viðhaldi á tækjum og búnaði. Margir rafvirkjar vinna einnig við hönnun, ráðgjöf og sölumennsku á sviði raflagna- og rafbúnaðar. Góðir atvinnumöguleikar Rafvirkjun er háþróuð tæknigrein sem býður upp á mikla atvinnumöguleika, fjölbreytt starfssvið og er góður kostur fyrir þá sem ætla í framhaldsnám í tæknifræði og/eða verkfræði. |
Eftirfarandi rafiðngreinar eru í boði við Fjölbrautaskólann í Breiðholti:
Grunndeild rafiðna - nýja brautin - fjórar annir - gildir frá ágúst 2006
Rafvirkjabraut - nýja brautin sem gildir fyrir þá sem hófu nám eftir 2006
Rafvirkjabraut - gamla brautin sem gildir fyrir þá sem hófu nám fyrir 2006
Prentvæn útgáfa á brautarlýsingu Rafvirkjabrautar á PDF formi
Uppröðun á áföngum á Rafvirkjabraut - meistaraleið
Uppröðun á áföngum á Rafvirkjabraut