| Snyrtibraut |
|
Ein af frumþörfum mannsins er að líða vel Er snyrtifræði eitthvað fyrir þig? Finnst þér gaman að vinna með fólki? Fjölbrautaskólinn í Breiðholti er brautryðjandi í kennslu í snyrtifræði eftir að hún varð löggilt iðngrein 1985. Nám í snyrtifræði Nám í snyrtifræði er bæði skemmtilegt og skapandi og skiptist í verklegt nám, fagbóklegar og almennar námsgreinar. Almennt bóklegt nám tekur 2 annir og verklegt nám í skóla er 4 annir. Að loknu námi í skóla tekur við 40 vikna starfsþjálfun. Námsbrautin er því skilgreind sem þriggja ára nám, auk starfsþjálfunarinnar. Námi í snyrtifræði lýkur með sveinsprófi og fær þá viðkomandi starfsheitið snyrtifræðingur. Nemandi þarf að vera orðinn 18 ára þegar hann byrjar nám í verklegri snyrtifræði. Framhaldsnám Til að öðlast meistararéttindi í greininni er hægt að fara í meistaraskóla og gerast sjálfstæður atvinnurekandi. Meistaranámið er 17 eininga nám. Af snyrtibraut er hægt að taka stúdentspróf. Mannleg samskipti Kennsla í snyrtifræði miðast við að veita almenna, faglega undirstöðumennt-un í greininni. Leitast er við að þjálfa sjálfstæð vinnubrögð nemenda og auka hæfileika þeirra og getu til samvinnu við aðra. Nemendur auka færni sína til að standast kröfur iðngreinarinnar um nákvæmni, áreiðanleika og fagleg vinnubrögð. Snyrtifræðingar vinna í mikilli nálægð við viðskiptavini sína og því er mikilvægt að þjálfa samskiptafærni nemenda og getu þeirra til að skilja þarfir viðskiptavina. Lögð er áhersla á að rækta jákvætt viðhorf nemenda til gæða þjónustu. Góðir atvinnumöguleikar Starf snyrtifræðings er fjölbreytt og gefandi og býður upp á margs konar atvinnutækifæri að námi loknu: Að vinna á snyrtistofu, á heilsuræktarstöðvum, að vera ráðgefandi í verslunum og heildverslunum. Námið er byggt upp samkvæmt alþjóðlegum kröfum í snyrtifræði. |