Skip to content
Þú ert hér: Forsíða arrow Brautir arrow Húsasmíðabraut
Húsasmíðabraut
Ein af frumþörfum mannsins er
að eiga þak yfir höfuðið


Veistu að einn af hverjum fjórum útskrifaðra sveina í húsasmíði er fyrrverandi nemandi Fjölbrautaskólans í Breiðholti?
Hver vill ekki geta smíðað hús yfir sig og sína?
Því ekki að læra húsasmíði?

Nám í húsasmíði
Nám í húsasmíði er bæði skemmtilegt og skapandi og skiptist í verklegt nám, fagbóklegar og almennar námsgreinar. Ný námskrá í húsasmíði tók nýlega gildi og breyttist námið verulega við það. Helstu breytingar eru þær að nú er aðeins ein námsleið, þ.e. allir verða að fara í verklegt nám í skóla áður en þeir fara á námssamning hjá húsasmíðameistara eða byggingafyrirtæki.

Nám í bygginga- og mannvirkjagreinum hefst með einnar annar grunnnámi sem er sameiginlegt fyrir:
Húsasmíði, húsgagnasmíði, málaraiðn,     múraraiðn, pípulagnir, veggfóðrun og dúklagnir.

Að loknu grunnnámi velja nemendur sér námsleið og í húsasmíði tekur við fjögurra anna bóklegt og verklegt nám í skólanum. Að loknu námi í skólanum taka við 72 vikur í vinnustaðanámi. Náminu lýkur síðan með sveinsprófi er veitir réttindi til að vinna í iðninni.

Raunhæf verkefni
Í verklega náminu er lögð áhersla á smíði á raunverulegum verkefnum þar sem
nemendur læra að nota handverkfæri og algengustu trésmíðavélar. Eitt af verk-efnum nemenda er sumarbústaður. Í þessu verkefni smíða nemendur í samvinnu sumarbústað frá grunni og skila honum fullbúnum.

Framhaldsnám
Af húsasmíðabraut er hægt að taka stúdentspróf og fara síðan í háskólanám.
Einnig er hægt að fara í meistaraskóla og gerast sjálfstæður atvinnurekandi.

Góðir atvinnumöguleikar
Atvinnumöguleikar í húsasmíði eru mjög miklir og starfið er mjög fjölbreytilegt. Í dag sárvantar fleiri húsasmiði á Íslandi.

 
Austurberg 5 | 111 Reykjavík | Sími 570 5600 | Símbréf 567 0389 | Tölvupóstur: Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það