|
Velkomin á heimasíðu sjúkraliðabrautar
Fjölbrautaskólans í Breiðholti.
Markmið náms á sjúkraliðabraut FB er að
-gera nemandann hæfan í starfsgrein sinni og þjálfa verklega færni sem nýtist á atvinnumarkaði
-þjálfa færni og hæfni nemandans til þess að standast kröfur heilbrigðisþjónustunnar hverju sinni um nákvæmni, áreiðanleika og fagleg vinnubrögð
-búa nemandann undir störf við hjúkrun skjólstæðinga innan og utan stofnana
-þjálfa nemandann í að takast á við ófyrirséð verkefni og aðstæður sem krefjast þekkingar, hugkvæmni, hæfni í samskiptum og rökvísi
-efla skilning nemandans á gildi forvarna í daglegu lífi
Inntökuskilyrði
Skilyrði til innritunar í nám á sjúkraliðabraut er að nemendur hafi lokið skyldunámi í samræmi við ákvæði aðalnámskrár grunnskóla og einnig lokið samræmdum lokaprófum í íslensku og stærðfræði og náð tilskildum lágmarksárangri skv. ákvæðum reglugerðar um innritun nemenda í framhaldsskóla. Nemendur með meira undirbúningsnám geta fengið það metið til styttingar á náminu.
Skipulag náms
Námið er alls 120 einingar og skiptist í almennar bóklegar greinar (86 einingar), verknám (3 einingar), vinnustaðanám (15 einingar) og starfsþjálfun (16 einingar). Meðalnámstími á sjúkraliðabraut eru 3 ár í skóla (6 annir) auk 16 vikna (16 ein.) starfsþjálfunar á launum.
Nám á sjúkraliðabraut er lánshæft að hluta til hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna (www.lin.is). Lán miðast við fimm annir og 96 einingar. Til þess að fá fullt lán þarf nemandi að skila 19 einingum á önn en 14 einingar nægja til þess að fá 75% lán.
Sjúkraliðanám er viðurkennd starfsmenntun og hljóta nemendur löggildingu að henni lokinni skv. reglugerð Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins. Sjúkraliðar starfa innan heilbrigðiskerfisins, svo sem á sjúkrahúsum, öldrunarheimilum, heilsugæslustöðvum, sambýlum fyrir fatlaða og víðar. Atvinnumöguleikar eru mjög góðir og þörf fyrir sjúkraliða eykst stöðugt með hækkandi lífaldri fólks og fjölgun þeirra sem á umönnun þurfa að halda.
Stúdentspróf
Nemendur geta lokið stúdentsprófi að loknu starfsnámi. Til þess þarf sjúkraliði að bæta við sjúkraliðanámið einingum í eftirfarandi greinum:
Íslensku 9 einingum
Ensku 6-8 einingum
Stærðfræði 2 einingum
Náttúrufræði og stærðfræði EÐA samfélagsfræði EÐA tungumálum 12 einingar að eigin vali. Fyrra nám í grein kemur ekki til frádráttar og nám í grein skal ekki vera minna en 9 einingar. Stærðfræði er þó undanþegin þessari 9 eininga reglu.
Slíkt nám veitir ekki aðgang að öllu námi á háskólastigi. Nemendur eru því hvattir til að kynna sér undirbúningskröfur viðkomandi skóla, hyggi þeir á nám á háskólastigi (www.hi.is).
Nemendur geta ekki brautskráðst með slíkt stúdentspróf, fyrr en þeir hafa lokið sjúkraliðanáminu og tilheyrandi starfsþjálfun. Það skal þó tekið fram að ætli nemandi á sjúkraliðabraut að ljúka stúdentsprófi þarf hann við skipulagningu á námsferli sínum að gæta þess að byrja fljótlega að taka viðbótareiningar í ofan nefndum greinum samhliða náminu á sjúkraliðabrautinni.
|