| Listnámsbraut - Myndlistarkjörsvið |
|
Skapandi einstaklingar eru lykill að framþróun 21. aldar Hefur þú löngun til að skapa? Þá gæti nám á listnámsbraut FB verið valkostur fyrir þig. Grunnur fyrir: myndlist, fatahönnun, vöruhönnun, arkitektúr, ljósmyndun ofl. Listnámsbraut er skipulögð sem þriggja ára námsbraut en nemendur geta bætt við sig einingum í bóklegum greinum og lokið stúdentsprófi. Með námi á listnámsbraut er lagður grunnur að frekara námi í listgreinum í sérskólum eða skólum á háskólastigi. Kjörsvið listnámsbrautar felur í sér sérhæfingu í listgreinum í samræmi við markmið aðalnámskrár fyrir framhaldsskóla. Í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti er unnt að velja á milli tveggja kjörsviða: myndlistarkjörsviðs og textíl- og fatahönnunarkjörsviðs. Auk þess er í boði handíðabraut sem er skipulögð sem eins árs námsbraut. Þar fá nemendur innsýn í fatahönnun, sniðtækni og fatasaum. Að náminu loknu fá nemendur útskriftarskírteini og geta einnig haldið áfram námi á textíl- og fatahönnunarkjörsviði. Á myndlistarkjörsviði velja nemendur á þriðja námsári á milli tveggja námsleiða: myndlistarleiðar og þrívíddarhönnunarleiðar, sem er góður undirbúningur fyrir nám í arkitektúr og vöruhönnun. Nemendum gefst með þessu vali kostur á að búa sig markvisst undir framhaldsnám í mismunandi greinum myndlistar og hönnunar. Kennarar listnámsbrautar eru allir starfandi fagmenn í myndlist, arkitektúr og textíl- og fatahönnun. |