Skip to content
Þú ert hér: Forsíða arrow Brautir arrow Listnámsbraut Textíl- og handmenntakjörsvið
Listnámsbraut Textíl- og handmenntakjörsvið

Hefur þú löngun til að skapa?

Þá gæti nám í textíl- og fatahönnun

verið frábær valkostur fyrir þig!

Listnámsbraut í textíl- og fatahönnun býður upp á þriggja ára grunnnám. Námið er byggt markvisst upp sem undirbúningur fyrir framhaldsnám í sérskólum eða í háskólum. Nemendur, sem þess óska, geta bætt við sig einingum í bóklegum greinum og lokið stúdentsprófi á textíl- og fatahönnunarkjörsviði.


Kjörsvið textíl- og fatahönnunar á listnámsbraut felur í sér sérhæfingu í textílgreinum í samræmi við markmið aðalnámskrár fyrir framhaldsskóla.

Fatahönnun – tískuteikningar - hugmyndavinna - prjón – hekl - hönnunarforrit – sniðteikningar, eru dæmi um hvað er kennt á brautinni.
Þú þarft ekki að óttast það að vera ekki snillingur í teikningum eða hafa jafnvel aldrei saumað á þig flík, eða, hvað er hugmyndavinna? Þú gætir komið þér á óvart með þeim aðferðum sem við leiðum þig áfram með!

FB hefur verið góður kostur fyrir marga af okkar nemendum sem þegar hafa varðað leiðina og fetað brautina í textíl- og fatahönnun og við erum stolt af þeim sem hafa gefið sér tækifæri til að þroska hæfileika sína á þessu sviði.

Valkostur fyrir stúdenta!
Handíðabraut er góður valkostur innan Fjölbrautaskólans í Breiðholti, skipulögð sem eins árs námsbraut fyrir nemendur sem þegar hafa lokið stúdentsprófi eða öðru námi og fyrir nemendur sem stefna markvisst á grunnnám í list-, hönnunar- og verkmenntanámi. Verkefnin sem nemendur vinna eru notuð til að byggja upp portfoliomöppu (safnmöppu) sem nauðsynlegt er að leggja fram ef sækja á um framhaldsnám.

 
Austurberg 5 | 111 Reykjavík | Sími 570 5600 | Símbréf 567 0389 | Tölvupóstur: Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það