Skip to content
Þú ert hér: Forsíða
Upplýsinga- og tæknibraut

Upplýsinga- og tæknibraut Fjölbrautaskólans í Breiðholti hefur verið sameinuð Náttúrufræðibraut. UT-brautin er nú kjörsvið á náttúrufræðibraut. Áfram eru kenndir flestir þeir áfangar sem voru á UT-brautinni en nú geta nemendur meira valið hvað þeir velja af gömlu UT-brautinni og hvað þeir taka af Náttúrufræðibraut.

Hér verður bent á nokkra áfanga sem eru í vali á Náttúrufræðabraut.


Hugbúnaðarfræði
Nemendur læra grunnþætti forritunar í PHP og verklag.

Rauntækni
Nemendur kynnast ýmsum mæliaðferðum og vali á tækjum, fjallað er um fram-
leiðslutækni, framleiðsluferli og lausn vandamála á því sviði. Í rauntækni ljúka
nemendur CISCO-kerfinu í tölvuumsjón.

Tölvustudd hönnun
Í áföngunum er unnið með grafík í tvívídd og grunnatriði í þrívídd. Nemendur læra notkun algengs teikni- og hönnunarforrits og vinna hönnunarverkefni í tölvu.

Upplýsinga- og samskiptafræði
Í upplýsinga- og samskiptafræði eru grunnhugtök samskiptafræðinnar kynnt. Farið er í stærðir og athygli nemenda vakin á mikilvægi þessara þátta með tilliti til gagna á vefnum. Nemendur læra undirstöðuatriði vefsíðugerðar og vinna vefi í sérhæfðum hugbúnaði til vefsíðugerðar. Nemendur þjálfast í notkun hljóð- og myndvinnsluhugbúnaðar og læra helstu hugtök stafrænnar hljóð- og myndvinnslu.

Vefmiðlun
Í áfanganum er kennd hönnun vefsíðu samkvæmt XHTML staðlinum. Nemendur fá þjálfun í notkun ýmissa hjálparforrita við vefsíðugerð, s.s. Dreamweaver. Nemendur kynnast undirstöðuatriðum í stafrænni myndvinnslu og lögð er áhersla á að þeir læri að meðhöndla myndir fyrir vef. Nemendur fá þjálfun í notkun Javascript og smíða gagnvirka vefi.

Verklagsfræði
Nemendur kynnast áætlanagerð og setja upp áætlanir í Excel. Kynning á Access gagnagrunni. Áhersla er lögð á að nemendur víkki út sjóndeildarhring sinn og temji sér að hugsa út frá öðrum og nýjum sjónarhornum.

 
Austurberg 5 | 111 Reykjavík | Sími 570 5600 | Símbréf 567 0389 | Tölvupóstur: Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það

Upplýsingaskjár

Skrifstofa

Vefpóstur

Inna : Nemendur

Dreifnámsvefur

Kynning á FB

pastarchives.jpg

 

frumskogur.jpg

 

User Menu