Skip to content
Þú ert hér: Forsíða arrow Skólareglur arrow Reglur um tölvukerfi skólans
Reglur um tölvukerfi skólans
Reglur um tölvunotkun í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti.
Tölvubúnaður Fjölbrautaskólans í Breiðholti er eign skólans og einungis ætlaður til náms, kennslu, kynningar og annarra þátta er samræmast markmiðum skólans.
  • Nemendur, sem eru að vinna verkefni vegna náms, hafa forgang í tölvur skólans.
  • Virða ber friðhelgi annarra notenda og nota einungis búnaðinn á heiðarlegan, siðferðilegan og löglegan hátt.
  • Handhafi notendanafns í tölvukerfi skólans er ábyrgur fyrir allri notkun þess.
  • Skólinn áskilur sér rétt til að fara yfir, skoða og eyða gögnum á heimasvæði nemenda til að tryggja að reglum um notkun búnaðarins sé fylgt.
  • Heimasvæði nemenda er tæmt í annarlok og bera nemendur sjálfir ábyrgð á að taka afrit af sínum gögnum. Starfsmenn FB bera ENGA ábyrgð á GLÖTUÐUM gögnum á milli anna.
  • Gert er ráð fyrir að hver nemandi hafi til umráða heimasvæði að hámarki 10 Mb nema sérstakt leyfi kerfisstjóra komi til.
Óleyfilegt er
  • • að veita öðrum aðgang að notandanafni sínu,
  • • að reyna að tengjast tölvubúnaði skólans með öðru notandanafni en því sem notandi hefur fengið úthlutað,
  • • að nota aðgang að neti skólans til þess að reyna að komast ólöglega inn á net eða tölvur í eigu annarra,
  • • að sækja, senda, geyma eða nota á neti skólans forrit sem hægt er að nota til innbrota eða annarra skemmdarverka,
  • • að breyta vinnuumhverfi á tölvum skólans þannig að það hafi áhrif á umhverfi og notkunarmöguleika annarra notenda,
  • • að vista á hörðu diskana á tölvunum,
  • • að breyta, afrita eða fjarlægja vélbúnað, hugbúnað eða gögn sem eru í eigu skólans,
  • • að afrita hugbúnað eða gögn í eigu annarra án leyfis eiganda,
  • • að setja inn hugbúnað á tölvur skólans án samþykkis kerfisstjóra,
  • • að senda, sækja eða geyma klámefni eða ofbeldisefni,
  • • að senda keðjubréf og annan ruslpóst,
  • • að nota leiki í tölvunum aðra en þá sem fylgja Windows kerfinu,
  • • að hlusta á útvarp eða horfa á sjónvarp í gegnum netið nema það sé lagt fyrir sem námsefni af kennara.
  • Öll meðferð matvæla er BÖNNUÐ í og við tölvur Fjölbrautaskólans í Breiðholti.

Að öðru leyti er vísað til notkunarreglna FS netsins . Notendur kerfisins skulu kynna sér þessar reglur þar sem þeir eru ábyrgir samkvæmt þeim.

Brot á þessum reglum geta leitt til lokunar á aðgangi að tölvum skólans og – sé um alvarlegt eða endurtekið brot að ræða – brottvísunar úr skóla.

 
Austurberg 5 | 111 Reykjavík | Sími 570 5600 | Símbréf 567 0389 | Tölvupóstur: Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það

Upplýsingaskjár

Skrifstofa

Vefpóstur

Inna : Nemendur

Dreifnámsvefur

Kynning á FB

pastarchives.jpg

 

frumskogur.jpg

 

User Menu