Skip to content
Þú ert hér: Forsíða arrow Skólareglur arrow Mætingareglur
Mætingareglur

3.6 Skólasókn
Nemendur skulu sækja allar kennslustundir í þeim áföngum sem þeir hafa í stundaskrá sinni og koma stundvíslega til kennslu.
-80% mæting lágmark í heildina.
-Mætingareglur í einstaka áföngum koma fram í kennsluáætlunum.
-Vottorð verði metin eftir fyrstu 2 dagana og nemi heldur fjarvistum fyrir fyrstu tvo dagana.
-Engin leyfi eru veitt fyrir læknisheimsóknum o.þ.h.
-Ferðir á vegum skólans eru að fullu dregnar frá.
-Keppnisferðir á vegum landsliða og í Evrópukeppnum eru dregnar frá að fullu.
-Þeir sem skráðir eru í áfanga, eftir að uppgefinn frestur til að segja sig úr er liðinn og mæta ekki í lokapróf, hafa ekki trygga skólavist næstu önn.

Nemandi sem hverfur frá námi án vitneskju skóla­meistara, hefur fyrirgert rétti sínum til áframhaldandi náms við dagskóla Fjöl­brauta­skólans í Breiðholti. Nemendur geta sótt um leyfi frá námi í dagskóla FB. Best er að sækja um leyfið á valdegi, en annars tímanlega áður en skóli hefst.

Skila þarf læknisvottorðum á skrifstofu skólans innan fimm daga frá lokum veikinda. Ef nemandi er veikur í viku eða lengur á hann að láta skrifstofuna vita símleiðis, og skila síðan vottorði að loknum veikindum.

Úrsögn úr áfanga
Nemendur geta sagt sig úr áfanga í fyrstu kennsluviku á hverri önn, án þess að það hafi nokkrar afleiðingar.

 
Austurberg 5 | 111 Reykjavík | Sími 570 5600 | Símbréf 567 0389 | Tölvupóstur: Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það

Upplýsingaskjár

Skrifstofa

Vefpóstur

Inna : Nemendur

Dreifnámsvefur

Kynning á FB

pastarchives.jpg

 

frumskogur.jpg

 

User Menu