|
Skólareglur Í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti gilda ákveðnar reglur um samskipti og umgengni og eru nemendur hvattir til þess að kynna sér þessar reglur strax í upphafi og leitast við að fara eftir þeim. Samskipta- og skólareglur í FB eiga það sameiginlegt að byggja á gagnkvæmri virðingu nemenda, kennara og annars starfsfólks. Auk þess er andi þeirra sá að hvetja til góðrar umgengni, tillitssemi og umburðarlyndis. Það er stefna FB að stuðla að því að allir sem þar starfa, nemendur, kennarar og annað starfsfólk, umgangist hver annan af kurteisi og tillitssemi. Nemendur og aðrir sem leita eftir þjónustu skrifstofu, bókasafns og mötuneytis eiga að finna gott og vinsamlegt viðmót. Á sama hátt ætlast skólinn til þess að allir þeir sem leita eftir þjónustu geri það á kurteislegan hátt og sýni skilning og biðlund ef ekki er hægt að sinna erindum þeirra samstundis. Skólasókn Nemendur skulu sækja allar kennslustundir í þeim áföngum sem þeir hafa í stundaskrá sinni og koma stundvíslega til kennslu. Nemendur verða að mæta í a.m.k. 80% kennslustunda. Í einstökum áföngum eru þó strangari mætingareglur og eru þær tilgreindar í námsáætlunum. Hér er t.d. um að ræða íþróttir, verklega áfanga og próflausa áfanga. Skólasóknareinkunn byggist á því hversu margar kennslustundir nemandi hefur í stundaskrá. Nemandi sem er með yfir 95% mætingu fær A í skólasókn og eina einingu. Nemandi með 90% - 94% mætingu fær B í skólasókn. Nemandi með 85% - 89% mætingu fær C í skólasókn og nemandi með 80%- 84% mætingu fær D í skólasókn. Ef nemandi fer niður fyrir 80% mætingu (þegar búið er að draga frá veikindavottorð og leyfi) er hann fallinn á önninni og fær einkunnina E í skólasókn. Hann verður þá að hafa samband við skólameistara eða aðstoðarskólameistara og gera grein fyrir fjarvistum sínum. Nemandi sem hverfur frá námi án vitneskju skólameistara, hefur fyrirgert rétti sínum til áframhaldandi náms við dagskóla Fjölbrautaskólans í Breiðholti. Nemendur geta sótt um leyfi frá námi í dagskóla FB. Best er að sækja um leyfið á valdegi, en annars tímanlega áður en skóli hefst. Veikindi Til að fá niðurfellda fjarvistaskráningu vegna veikinda þarf að skila inn læknisvottorðum eða staðfestingu frá foreldri eða forráðamanni sé nemandi undir 18 ára aldri. Vottorðin eru að fullu metin. Skila þarf læknisvottorðum á skrifstofu skólans innan fimm daga frá lokum veikinda. Ef nemandi er veikur í viku eða lengur á hann að láta skrifstofuna vita símleiðis, og skila síðan vottorði að loknum veikindum. Úrsögn úr áfanga Nemendur geta sagt sig úr áfanga í fyrstu kennsluviku á hverri önn, án þess að það hafi nokkrar afleiðingar. Mæti nemandi ekki í próf í áfanga sem hann er skráður í, eftir fyrstu kennsluviku, fær hann einkunnina H á einkunnablaðið og þarf síðar að borga endurinnritunargjald 500 kr. fyrir hverja einingu. Taki nemandi próf í færri einingum en hann er skráður í eftir fyrstu kennsluviku fær hann ekki fleiri einingar, en sem því nemur, í stundaskrá á næstu önn. Dæmi: Ef nemandi sem skráður var í 18 einingar eftir fyrstu kennsluviku, tekur próf í 14 einingum, þá fær hann 14 einingar í stundaskrá á næstu önn Tölvureglur Prófareglur
|