|
1.12 Stöðupróf
Tilgangur stöðuprófa er að gera viðkomandi kleift að sanna þekkingu sína í tiltekinni grein eða á tilteknu sviði. Með þessum hætti geta nemendur fengið viðurkennda þekkingu og reynslu sem þeir búa yfir og ekki hefur verið aflað með hefðbundnum hætti í skóla og stytt þannig námstíma sinn til lokaprófs. Þeir sem ganga undir stöðupróf greiða sannanlegan kostnað vegna prófanna. Menntamálaráðuneytið felur framhaldsskóla/um framkvæmd stöðuprófa samkvæmt nánari auglýsingu. Stöðupróf eru haldin a.m.k. einu sinni á ári í bóklegum og verklegum greinum eftir því sem tilefni er til.
Undanfarin ár hafa stöðupróf verið haldin í Menntaskólanum við Hamrahlíð í ágúst og desember ár hvert. Nemendum FB skal bent á að hafa samband við starfsfólk Menntaskólans við Hamrahlíð til að fá dagsetningar.
|