|
Fjölbrautaskólinn í Breiðholti byggir á áfanga- og fjölbrautakerfi. Öllum námsgreinum skólans er skipt í áfanga sem hafa skilgreind markmið. Námsmatið byggir á upplýsandi skilaboðum til nemenda og lýsingu á því að hve miklu leyti þeir hafa náð að tileinka sér markmið skólanámskrár. Námsmat byggir á markmiðum náms og fá nemendur upplýsingar um skipulag náms, námskröfur og námsmat í kennsluáætlunum sem þeir fá afhentar í byrjun námsannar í sérhverjum námsáfanga. Skólinn leggur áherslu á ábyrgð nemenda í námi og leitast við að upplýsa og leiðbeina þeim eins og kostur er.
Einkunnir eru gefnar í heilum tölum frá 1 til 10.
Einkunnin 10 vísar til þess að 95 -100% markmiða hafi verið náð
- 9 - 85 - 94% -
- 8 - 75 - 84% -
- 7 - 65 - 74% -
- 6 - 55 - 64% -
- 5 - 45 - 54% -
- 4 - 35 - 44% -
- 3 - 25 - 34% -
- 2 - 15 - 24% -
- 1 - 0 - 14% -
Til að standast próf í áfanga og fá rétt til að hefja nám í næsta
áfanga þarf lágmarkseinkunnina 5. Þó er nemanda heimilt að útskrifast
með einkunnina 4 (D) ef um lokaáfanga eða stakan áfanga er að ræða.
Ekki er heimilt að hafa fleiri en tvær slíkar einkunnir á
lokaprófsskírteini. Þessir áfangar gefa ekki einingar og verður nemandi
því að afla annarra eininga í stað þeirra. Nemanda er einungis
leyfilegt að endurtaka eitt próf (endurtektarpróf) ef um útskrift er að
ræða. Kennurum er óheimilt að gefa nemendum upp einkunnir fyrr en á
afhendingardegi einkunna.
|