1.7 Nám metið úr öðrum skólum
Við skólann starfar matsnefnd sem metur nám úr öðrum skólum til eininga
eftir frumgögnum viðkomandi skóla og er það fellt að námskerfi FB eftir
því sem kostur er. Nám úr öðrum skólum er metið þannig að einkunn helst
óbreytt. Matshæft telst nám að loknu grunnskólaprófi sem hefur
skilgreind markmið og lýkur með námsmati og fullnægjandi árangri. Þar
er um að ræða allt viðurkennt nám á framhaldsskólastigi, nám sem
veitir starfsréttindi, viðurkennd námskeið, hliðstætt nám erlendis
o.fl. Metnir áfangar færast inn á námsferil nemandans og koma fram á
einkunnablaði í lok hverrar annar. Skólinn innheimtir gjald fyrir
námsmat bæði í dagskóla og kvöldskóla.
|