|
1.5 Inntökuskilyrði
Eftirfarandi reglur gilda um inngöngu í dagskóla Fjölbrautaskólans í Breiðholti:
Almenn námsbraut Nemandi hefur lokið grunnskólaprófi en uppfyllir ekki inntökuskilyrði á aðrar námsbrautir FB. Brautin hentar einnig fyrir óráðna nemendur.
Starfsbraut – sérdeild Sérbraut fyrir fatlaða nemendur sem hafa fengið námsmat í grunnskóla í samræmi við 48. gr. laga um grunnskóla 1995.
Félagsfræðabraut Skólaeinkunnir skulu vera sem hér segir: enska 6,0; íslenska 6,0; stærðfræði 5,0. Skólaeinkunn í samfélagsgreinum skal að lágmarki vera 6,0.
Málabraut Skólaeinkunnir skulu vera sem hér segir: danska 6,0; enska 6,0; íslenska 6,0; stærðfræði 5,0.
Náttúrufræðibraut Skólaeinkunnir skulu vera að lágmarki: enska 5,0; íslenska 6,0; stærðfræði 6,0; náttúrufræði 6,0.
Viðskipta- og hagfræðibraut Skólaeinkunnir skulu vera að lágmarki: enska 5,0; íslenska 6,0; stærðfræði 6,0.
Húsasmíði Skólaeinkunn í íslensku og stærðfræði skal að lágmarki vera 5,0.
Rafvirkjun Skólaeinkunn í íslensku og stærðfræði skal að lágmarki vera 5,0.
Listnámsbrautir Skólaeinkunn í íslensku og stærðfræði skal að lágmarki vera 5,0. Nemendur á listnámsbraut verða auk þess að hafa lokið myndmenntagreinum í grunnskóla með skólaeinkunn ekki lægri en 6,0.
Sjúkraliðabraut Skólaeinkunn í íslensku og stærðfræði skal að lágmarki vera 5,0.
Snyrtibraut Skólaeinkunn í íslensku og stærðfræði skal að lágmarki vera 5,0.
Íþróttabraut Skólaeinkunn í íslensku og stærðfræði skal að lágmarki vera 5,0.
1.6 Nánar um inntökuskilyrði í Fjölbrautaskólann í Breiðholti
Nemendur sem uppfylla inntökuskilyrði þau sem talin eru upp hér að framan hafa forgang að innritun á viðkomandi námsbraut.
Skólameistari velur nemendur inn í skólann og hefur heimild til þess að víkja frá reglum um inntöku í framhaldsskóla ef hann telur líkur á því að þeir standist þær kröfur sem gerðar eru um námsárangur á viðkomandi námsbraut. Auk þess er skólameistara heimilt skv. 32. gr. laga um framhaldsskóla að veita nemanda, sem orðinn er 18 ára gamall, inngöngu á einstakar brautir framhaldsskóla þótt hann uppfylli ekki lágmarkskröfur um námsárangur við lok grunnskóla.
Skólameistari ber ábyrgð á inntöku nemenda í skólann og getur hann veitt undanþágu frá inntökuskilyrðunum ef rík ástæða er fyrir hendi.
Vilji nemandi tryggja sér rétt til náms á öllum námsbrautum þarf hann að ná viðmiðunareinkunn í öllum námsgreinum við lok grunnskóla.
Umsóknir um skólavist skulu hafa borist skólanum innan auglýsts tíma hverju sinni. Innritað er á haustannir í byrjun júní ár hvert og umsóknir um námsvist á vorönnum verða að hafa borist skólanum fyrir nóvemberlok. Umsóknir um starfsbraut skólans þurfa að berast kennslustjóra starfsbrautar mun fyrr og er það auglýst sérstaklega.
Kvöldskóli FB er opinn öllum einstaklingum nítján ára og eldri og fer innritun í hann fram í upphafi hverrar annar. Inntökuskilyrði á námsbrautir kvöldskólans gilda ekki með sama hætti og í dagskólanum enda nemendur í kvöldskóla á eigin forsendum. Vakin er athygli á nauðsynlegum undirbúningi fyrir efri námsáfanga í öllum greinum og að reglur um undanfara séu virtar.
|