Um skólann
Hlutverk og stefna | Hlutverk og stefna |
|
1.1 Hlutverk framhaldsskóla og sérstaða Fjölbrautaskólans í Breiðholti Hlutverk framhaldsskóla er skilgreint í framhaldsskólalögunum sem sett voru á Alþingi árið 1996. Þar segir eftirfarandi um almennt hlutverk framhaldsskóla: - að stuðla að alhliða þroska allra nemenda svo að þeir verði sem best búnir undir að taka virkan þátt í lýðræðisþjóðfélagi - að búa nemendur undir störf í atvinnulífinu og frekara nám - að leitast við að efla ábyrgðarkennd, víðsýni, frumkvæði, sjálfstraust og umburðalyndi nemenda - að þjálfa nemendur í öguðum og sjálfstæðum vinnubrögðum og gagnrýninni hugsun - að kenna þeim að njóta menningarlegra verðmæta og hvetja til stöðugrar þekkingarleitar Markmið skólans eins og annarra framhaldsskóla er bundið í lögum, reglugerðum, reglum og aðalnámskrá framhaldsskóla. Skólinn býður upp á fjölbreytt nám á framhaldsskólastigi og höfðar til mjög margra og ólíkra hópa. Námsframboð skólans er svipað í dag- og kvöldskóla. Skólinn leitast við að þjóna nemendum og bjóða fram fjölbreytt nám sem höfðar til mjög fjölbreytilegs nemendahóps. Í boði er metnaðarfull hraðleið til stúdentsprófs fyrir góða námsmenn, almennt bóknám með fjölbreytilegu sjálfsvali nemenda á kjörsviðsgreinum bóknámsbrautanna, upplýsinga- og tækninám, listnám og verknám sem uppfyllir kröfur og þarfir atvinnulífs eins og best verður á kosið. Fjölbrautaskólinn í Breiðholti hefur einnig lagt grundvöll að mjög farsælu starfi í sérdeildum fyrir fatlaða. Námsbrautir skólans fylgja skipulagi og markmiðum aðalnámskrár framhaldsskóla en skólinn nýtir sér það svigrúm sem aðalnámskrá heimilar. Námsbrautir starfsnáms eru í sífelldri endurskoðun og mega nemendur gera ráð fyrir því að námskrár breytist á námstímanum. Almennt gildir sú regla að nemendur fylgja þeirri námskrá sem þeir innritast eftir – nema um annað sé samið. Fjölbrautaskólinn í Breiðholti leggur á það áherslu að áfanga- og fjölbrautakerfið fái að njóta sín eins og kostur er nemendum til framdráttar og hagsbóta í áframhaldandi námi og störfum. Í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti er lögð áhersla á að bjóða fram starfskrafta og þjónustu vel menntaðs starfsfólks. Skólinn leggur áherslu á öflugt umsjónarstarf með nemendum, skilvirka upplýsingastefnu þar sem allt starfsfólk skólans, nemendur og foreldrar þeirra eiga greiðan aðgang að mikilvægum upplýsingum um skólastarfið, faglega náms- og starfsráðgjöf, skilvirkt forvarnastarf og foreldrasamstarf. Skólinn leggur áherslu á að meta skólastarfið á skilvirkan hátt með áherslu á að auka gæði starfsins eins og best verður á kosið. Almennan fyrirvara verður að gera á möguleikum skólans til þess að sinna öllum verkefnum á þann hátt sem hann kýs þar sem svigrúm skólans er háð fjárveitingum og aðstöðu sem honum er búinn. Stefna Fjölbrautaskólans í Breiðholti er að: - bjóða nemendum sínum faglega og góða kennslu - skapa nemendum góð skilyrði til náms - undirbúa nemendur undir frekara nám - undirbúa nemendur undir krefjandi störf í atvinnulífi - gera kröfur til nemenda um ástundun og ræktarsemi í námi - auka metnað nemenda og hvetja þá til þess að ná góðum árangri í námi - stuðla að auknum þroska hvers einstaklings með því að bjóða fram viðfangsefni við hæfi – eins og kostur er - auka hæfni nemenda til sjálfstæðra og vandaðra vinnubragða - efla með nemendum gagnrýna og skapandi hugsun - efla áhuga og skilning nemenda á umhverfi sínu og samfélagi og hvetja þá til þátttöku í lýðræðislegu starfi - glæða skilning og áhuga nemenda á þjóðlegum og menningarlegum verðmætum - rækta með nemendum vilja til að eiga jákvæð samskipti við aðra og sýna þeim tillitssemi og umburðarlyndi Í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti er lögð áhersla á að þjóna mjög breiðum hópi nemenda og bjóða fjölbreytt nám: - Bóknámsbrautir til stúdentsprófs – úrval kjörsviðsgreina - Upplýsinga- og tæknigreinar sem kjörsvið á náttúrufræðibraut - Listnámsbraut með myndlistakjörsviði. - Listnámsbraut með textíl- og hönnunarkjörsviði. - Húsasmíði - Rafvirkjun - Sjúkraliðabraut - Snyrtibraut - Handíðabraut - Viðskiptabraut - Fjölbreytilegt viðbótarnám til stúdentsprófs að loknu list- og verknámi - Almenn námsbraut - Starfsbraut fyrir fatlaða nemendur |