|
1. Almenn ákvæði.
1.1. Félagið heitir Nemendafélag Fjölbrautaskólans í Breiðholti, skammstafað N.F.B.
1.2. Lögheimili og varnarþing félagsins er að Fjölbrautaskólanum í Breiðholti, Austurberg 5, 111 Reykjavík.
1.3. Félagar eru allir og einingus þeir nemendur sem stunda nám í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti og hafa greitt nemendafélags gjöldin.
1.4. Félagið er í;
1.4.1. Hagsmunasamtökum Iðnemasambands Íslands (I.N.S.Í.).
1.4.2. Hagsmunafélagi Íslenskra Framhaldsskólanema (H.Í.F.).
1.5. Einkennislitir félagsins skulu vera gulur og svartur.
1.6. Merki N.F.B. skal vera átta línur sem mynda bókstafina N.F.B.
2. Tilgangur og markmið
2.1. Markmið félagsins.
2.1.1. Að auka lýðræðisvitund félaga sinna.
2.1.2. Að gæta hagsmuna félaga sinna.
2.2. Tilgangur félagsins.
2.2.1. Að halda upp sem fjölbreyttasti félagsstarfsemi meðal félaga sinna.
2.2.2. Að annast og skipuleggja sölustarfsemi í skólanum, einkum bóksölu.
2.2.3. Að vinna að uppgangi Fjölbrautaskólans í Breiðholti á sem flestum sviðum.
3. Aðalfundur.
3.1. Aðalfundur félagsins er æðsta vald félagsins.
3.2. Aðalfund skal halda tveim vikum eftir kosningar.
3.3. Rétt til setu á aðalfundi félagsins með kosningarétt eiga allir meðlimir N.F.B. sem hafa lokið að minnsta kosti einni önn.
3.4. Helstu aðalfundarstörf eru:
3.4.1. Kosning fundarstjóra og ritara.
3.4.2. Skýrsla nemendaráðs.
3.4.3. Skýrsla nefnda.
3.4.4. Ályktanir.
3.4.5. Lagabreytingar.
3.4.6. Að nemendafélagið ákveði nemendafélagsgjöld.
3.4.7. Önnur mál.
3.5. Til aðalfundar skal boða í fréttablaði N.F.B. og á auglýsingatöflum félagsins með minnst viku fyrirvara.
3.6. Ályktanir á aðalfundi eru stefnumarkandi fyrir nemendaráð og skal nemendaráð framfylgja þeim eftir fremsta megni.
3.7. Nemendaráð sér um að boða aukaaðalfund með sama hætti og aðalfund. Rétt til setu á aukaaðalfund á Allsherjarráð auk meðlima í N.F.B.
3.8. Til þess að aðalfundur og/eða aukaaðalfundur sé löglegur skulu 50% Allsherjarráðs vera mættir.
4. Nemendaráð.
4.1. Nemendaráð er framkvæmdarstjórn félagsins og fer með æðsta vald milli aðalfunda. Þá sér það um daglegan rekstur félagsins og gætir þess að lögum þess sé framfylgt. Ekki er hægt að gera bindandi samninga fyrir hönd N.F.B nema með samþykki nemendaráðs og félagsmálastjóra.
4.2. Í nemendaráði eiga sæti: Formaður, varaformaður, ritari, skólaráðsfulltrúi, skemmtanastjóri og markaðsstjóri.
4.3. Nemendaráð skal halda fundi eigi sjaldnar en vikulega.
4.4. Nemendaráð skal sjá til þess að í skólanum verði rekin matsala og bóksala.
4.5. Komi upp almenn ónægja í Allsherjarráði, með ákvörðun nemendaráðs, skal nemendaráð endurskoða ákvörðun sína með tilliti til vilja meirihlutans.
4.6. Nemendaráð skal víkja embættismönnum innan N.F.B. úr stöðum sínum ef 80% mætingarskyldu á fundi er ekki fullnægt. Einnig ef gróf brot hafa verið framin af viðkomandi. Skal þetta metið í lok haustannar.
4.7. Formaður.
4.7.1. Formaður sér um að kveða nemendaráð og allsherjaráð til funda og stýra þeim.
4.7.2. Formaður kemur fram sem fulltrúi og talsmaður nemenda utan skólans sem innan.
4.7.3. Formaður situr í skólanefnd.
4.7.4. Formaður situr í skólaráði.
4.7.5. Formaður situr í félagsstarfanefnd.
4.8. Varaformaður.
4.8.1. Varaformaður er staðgengill formanns.
4.8.2. Varaformaður er fyrsti maður til að aðstoða nefndir ef þörf krefur og vera tengiliður nefnda við nemendaráð.
4.8.3. Varaformaður sér einnig um að skipuleggja allar ferðir undir formerkjum N.F.B.
4.9. Ritari.
4.9.1. Ritari skal sjá til þess að fundagerðir allra funda nemendaráðs og allsherjarráðs séu vélritaðar og komið fyrir á nemendaráðsskrifstofu,bókasafni F.B. og nfb.is, innan viku frá fundi. Þau mál sem eru enn á viðkvæmu stigi má skrá í fundargerð undir liðnum trúnaðarmál enda séu þau kynnt síðar ef kostur er.
4.9.2. Ritari tekur við öllum pósti félagsins og heldur honum til haga í þar til gerðri möppu.
4.9.3. Ritari hefur umsjón með og ber ábyrgð á allri útgáfu á vegum N.F.B.
4.9.4. Ritari skal sjá um rafræna símaskrá N.F.B.
4.10. Skólaráðsfulltrúi.
4.10.1. Skólaráðsfulltrúi situr á skólaráðsfundum, ásamt formanni nemendaráðs.
4.10.2. Skólaráðsfulltrúi fulltrúi nemenda í skólaráði.
4.10.3. Skólaráðsfulltrúa ber að gæta hagsmuna nemenda og styðja þá í þeim málum sem þeir eiga í við stjórn skólans.
4.10.4. Skólaráðsfulltrúi skal halda auglýsta viðtalstíma með jöfnu millibili.
4.10.5. Skólaráðsfulltrúi er trúnaðarmaður nemenda og skal sjá um að hagsmuna þeirra sé alls staðar gætt.
4.10.6. Skólaráðsfulltrúa ber að hefja starfsemi aðals í byrjun hvorrar annar og sér um tengsl Aðals og Nemendaráðs.
4.10.7. Skólaráðsfulltrúi sér um mætingarskýrslu einstaklinga í Allsherjarráði.
4.11. Skemmtanastjóri.
4.11.1. Skemmtanastjóri hefur yfirumsjón með öllum skemmtunum á vegum N.F.B.
4.11.2. Skemmtanastjóri starfar sem formaður skemmtinefndar.
4.11.3. Skemmtanastjóri skal einnig aðstoða nefndir ásamt varaformanni.
4.12. Markaðsstjóri.
4.12.1. Markaðsstjóri hefur yfirumsjón með allri markaðssetningu á vegum N.F.B. í samráði við þær nefndir sem málið snertir.
4.12.2. Markaðsstjóri starfar sem formaður markaðsnefndar.
4.12.3. Markaðsstjóri skal gefa fjárhagsskýrslu félagsins í upphafi haustannar sem nemendaráð skal fylgja eftir eins og hægt er.
5. Allsherjarráð.
5.1. Allsherjarráð samanstendur af nemendaráði, formönnum og félögum nefnda.
5.2. Allsherjarráð þjónar þeim tilgangi innan N.F.B. að samhæfa starfsemi nemendaráðs og nefnda.
5.3. Allsherjarráð skal halda fundi eigi sjaldnar en einu sinni í mánuði.
5.4. Mál nefnda skulu tekin fyrir á allsherjarráðsfundum en lokaákvörðun skal tekin af nemendaráði í samráði við hlutaðeigandi nefndir.
5.5. Á fundum allsherjarráðs skulu allar nefndir leggja fram dagskrá yfir fyrirhugað starf komandi mánaðar og skal dagskrá síðasta mánaðar yfirfrain. Skal nemendaráð sjá til þess að dagskránni sé framfylgt.
5.6. Öllum meðlimum allsherjarráðs er hvenær sem er frjáls að óska eftir fundi og skal nemendaráð verða við því eins fljótt og hægt er.
6. Nefndir, félög og ráð.
6.1. Eftirtaldar nefndir og félög skulu starfrækt innan N.F.B. og skulu þær sitja í Allsherjarráði. Í hverri nefnd skulu stitja fimm manns, fjórir kosnir á kjörtdegi, nema annað sé tekið fram, og einn nýnemi kosinn að hausti.
6.2. Leiklistarfélagið Aristófanes.
6.2.1. Leiklistarfélagið Aristófanes skal sjáum að fjölbreytt leiklistarstarfsemi sé innan N.F.B.
6.2.2. Leiklistarfélagið Aristófanes skal vera í samstarfi við Árshátíðarnefnd við uppsetningu leikrits.
6.3. Árshátíðarnefnd.
6.3.1. Árshátíðarnefnd skal sjá um skipulagningu leikrits/söngleikjar N.F.B.
6.3.2. Frumsýning leikrits skal haldin á árshátíðardag.
6.3.3. Árshátíðarnefnd skal sjá um skipulagningu árshátíðar í samstarfi við skemmtinefnd.
6.4. Málfundarfélagið Gróa.
6.4.1. Málfundarfélagið Gróa skal sjá um að halda reglulega málfundi.
6.4.2. Málfundarfélagið Gróa skal sjá um Rollukeppni sé haldin á haustönn, og sigurvegarar úr Rollukeppni keppi fyrir hönd N.F.B. í Morfís.
6.4.3. Málfundarfélagið Gróa skal sjáum útgáfu á málgagni sínu.
6.5. Íþróttanefnd.
6.5.1. Íþróttanefnd sér um að innan skólans sé sterk og fjölþætt íþróttastarfsemi.
6.5.2. Íþróttanefnd skipuleggur keppnir innan skólans og við aðra skóla.
6.5.3. Íþróttanefnd sér um skipulagningu íþróttahátíðar N.F.B.
6.6. Ljósmyndanefnd.
6.6.1. Ljósmyndanefnd skal senda einn til tvo fulltrúa á allar skemmtanir á vegum N.F.B., endurgjaldslaust svo framarlega sem þeir séu að sinna starfi sínu.
6.6.2. Ljósmyndanefnd skal sjá um myndasíðu nfb.is.
6.6.3. Ljósmyndanefnd skal halda sýningu á myndum úr félagslífinu eigi sjaldnar en einu sinni í mánuði.
6.7. Ritnefnd
6.7.1. Ritnefnd skal sjá um útgáfu Fréttaheims, málgagns N.F.B.
6.7.2. Blaðið skal koma út í það minnsta tvisvar á önn.
6.7.3. Blaðið skal vera tengiliður Allsherjarráðs við félagsmenn.
6.7.4. Blaðinu skal dreift frítt meðal félagsmanna.
6.8. Skemmtinefnd:
6.8.1. Formaður nefndarinnar er skemmtanastjóri og situr hann í nemendaráði.
6.8.2. Skemmtinefnd skal sjá um skipulagningu dansleikja.
6.8.3. Skemmtinefnd skal sjá um skipulagningu nýnemakvölds á haustönn í samráði við Undirheimanefnd.
6.8.4. Skemmtinefnd skal sjá um skipulagningu árshátíðar í samstarfi við árshátíðarnefnd.
6.8.5. Skemmtinefnd skal einnig hafa yfirumsjón með öðrum skemmtunum á vegum N.F.B. Þ.á.m. Skemmtikvöld.
6.9. Undirheimanefnd.
6.9.1. Undirheimanefnd hefur umsjón um ráðstöfun Undirheima í samráði við Nemendaráð.
6.9.2. Undirheimanefnd skal sjá um skipulagningu fundartíma og skemmtana í Undirheimum.
6.9.3. Undirheimanefnd skal auglýsa opnunartíma Undirheima hverju sinni í samstarfi við auglýsinganefnd og skal sjá til þess að fullnægjandi öryggisgæsla sé til staðar á opnunartíma.
6.10. Auglýsinganefnd.
6.10.1. Auglýsinganefnd skal sjá um að auglýsa atburði og skemmtanir N.F.B.
6.10.2. Auglýsinganefnd skal sjá um að halda auglýsingatöflum í góðu ásigkomulagi.
6.11. Videonefnd.
6.11.1. Videonefnd ber ábyrgð á tækjum og efni Videonefndar.
6.11.2. Videonefnd skal sjá um upptökur á því helsta sem gerist í félagslífi N.F.B.
6.11.3. Videonefnd skal sjá um gerð og sýningar fréttaþátta úr félagslífinu. Þar skal einnig auglýst það sem er helst á döfinni í samstarfi við auglýsinganefnd.
6.11.4. Tæki þau og fylgihlutir sem teljast til Videonefndar skulu eingöngu notuð af nefndarmeðlimum. Óski hinsvegar einhver eftir afnotum af aðstöðu eða tækjum Videonefndar utan hefbundinna verkefna, þarf samþykki nemendaráðs, sem er tekið í samráði við formann Videonefndar.
6.11.5. Með öllu er óheimilt að lána út efni sem Videonefnd hefur til umráða á myndbandi.
6.12. Markaðsnefnd.
6.12.1. Formaður nefndarinnar er markaðsstjóri og situr í nemendaráði.
6.12.2. Markaðsnefnd sér um alla markaðssetningu á N.F.B.
6.13. Vefráð – www.nfb.is
6.13.1. Formaður vefráðs er vefstjóri.
6.13.2. Vefráð hefur umsjón með vefsíðu N.F.B. http://www.nfb.is og öllum vefsíðum á vegum N.F.B.
6.14. Útvarpsnefnd
6.14.1. Formaður Útvarpsnefndar er útvarpsstjóri.
6.14.2. Skank FM er rekið á vorönn en starfsemi Útvarpsnefndar skal hefjast á haustönn.
6.14.3. Að miklu þarf að huga í undirbúningi Skank FM og skal útvarpsnefnd hefja auglýsingasölu og markaðssetningu í samráði við markaðsstjóra.
6.15. Pro et Contra.
6.15.1. Formaður Pro et Contra er ritsjóri Pro et Contra.
6.15.2. Pro et Contra skal vera blað óháð N.F.B. þar sem allir eiga rétt á því að koma skoðunum sínum á framfæri.
6.16. Sæludaganefnd
6.16.1. Sæludaganefnd skal sjá um skipulagningu sæludaga.
6.16.2. Sæludagar eiga að vera haldnir á vorönn, dagana fyrir árshátíð.
6.16.3. Sæludaganefnd skal hefja undirbúning í samstarfi við markaðsnefnd á haustönn.
6.1. Nefndir lúta stjórn Nemendaráðs.
6.16. Innan hverrar nefndar skal kjósa ritara.
6.17. Nefndir skulu gera fjárhagsáætlun í byrjun skólaárs sem nemendaráð fær til samþykktar. Einnig skulu formenn skila inn bókhaldi og starfsáætlun á Allsherjarráðsfundum.
6.18. Gjaldkerum hverrar nefndar ber að tilkynna nemendaráði áður en lagt er í kostnað umfram fjárhagsáætlun. Verði þessu ekki sinnt hefur nemendaráð heimild til að útiloka viðkomandi frá öllum ábyrgðarstöðum innan nemendafélagsins.
6.19. Ritari hverrar nefndar skal safna saman upplýsingum um starf nefndarinnar í fundargerðarbók eða gagnamöppu til hagræðingar fyrir viðkomandi nefnd.
6.20. Fráfarandi nefnd skal halda a.m.k. einn fund með viðtakandi nefnd fyrir lok vorannar til upplýsingamiðlunar og aðstoðar.
7. Rekstur og embættismenn N.F.B.
7.1. Bóksala
7.1.1. Bóksala skal leitast við að þjóna nemendum með bækur og ritföng á sem ódýrastan hátt.
7.1.2. Bóksalan skal verða gerð upp eigi síðar en 15. apríl ár hvert. Ef um hagnað er að ræða skal hann leggjast inn á reikning nemendafélagsins.
7.1.3. Nemendaráð skipar í stöðu bóksölustjóra eftir að staðan hefur verið auglýst og skal staða bóksölustjór auglýst samtímis og auglýst eftir framboðum í nefndir og félög.
7.1.4. Bóksölustjóri heldur um rekstur bóksölunnar.
7.1.5. Bóksölustjóri þarf að vera fjárráða.
7.1.6. Bóksölustjóri skal skipa í stöðu aðstoðarbóksölustjóra og skal hann vera nemandi í skólanum.
7.1.7. Laun Bóksölustjóra og aðstoðarbóksölustjóra skulu vera samkomulagsatriði milli nemendaráðs og bóksölustjóra.
7.1.8. Nemendaráð starfar í bóksölunni á álagstímum og fær að launum lánaðar námsbækur.
7.1.9. Bóksölustjórar eru starfsmenn N.F.B. og skal ekki vera borguð laun fyrr en bókhaldi er skilað.
7.1.10. Bóksölustjórar lúta ekki sömu lögum og nefndarmeðlimir og eiga því ekki rétt á sömu fríðindum.
7.2. Tækjavörður N.F.B.
7.2.1. Tækjavörður situr í Videonefnd.
7.2.2. Tækjavörður skal sjá um hljóðkerfi N.F.B. og ljóskastara þá sem N.F.B hefur til umráða. Hann skal sjá um uppsetningu á tækjum, hljóðkerfum og kösturum fyrir uppákomur og stjórna því í samvinnu við þá sem að uppákomunni standa.
7.2.3. Tækjavörður skal sjá um útlán og leigu á tækjum N.F.B. og er leiguverð ákveðið af nemendaráði í samráði við tækjavörð.
7.2.4. Tækjavörður skal útbúa lista yfir allar tækjaeigur N.F.B. og skal hann sjá til þess að öll tæki séu í öruggri vörslu.
8. Kosningar.
8.1. Kjörstjórn.
8.1.1. Í kjörstjórn skulu sitja aðilar skipaðir af nemendaráði og skulu þeir starfa í samráði við það.
8.1.2. Kjörstjórn skal sjá um skipulagningu og framkvæmd kosninga.
8.1.3. Kjörstjórn skal sjá um að kosningaúrslit séu gerð kunn í síðasta lagi 2 virkum skóladögum eftir að kjördegi lauk.
8.2. Kjörgengi
8.2.1. Kjörgengi í öll framboð innan N.F.B. er háð því að frambjóðendur verði næstu tvær annir í skólanum og hafi greitt nemendafélagsgjöldin önnina sem kosningin fer fram.
8.2.2. Formaður skal kosinn á kjördegi hvert ár. Kjörgengi er háð því að frambjóðandinn sé fjárráða, hafi ekki verið sviptur sjálfræði.
8.2.3. Varaformaður, ritari og skemmtanastjóri skulu vera kosnir á kjördegi hvert ár: Kjörgengi er háð því að frambjóðendur séu fjárráða.
8.2.4. Skólaráðsfulltrúi: Skal kosinn á kjördegi hvert ár. Kjörgengi er háð því að frambjóðandinn sé fjárráða.
8.2.5. Fjórir skulu kosnir í hverja nefnd. Kjörgengi er háð því að frambjóðandinn hafi stundað nám við skólann í tvær annir og hafi greitt nemendafélagsgjöld önnina sem kosningar eru háðar.
8.3. Kjördagur
8.3.1. Kjördagur skal haldinn í miðjum apríl.
8.3.2. Kjördagur skal standa frá kl. 09:00 til 16:00. Skal talning hefjast þegar kjördegi er lokið.
8.3.3. Kosningar skulu vera leynilegar og bindandi. Atkvæði greitt manni sem ekki hefur gefið kost á sér er ógilt.
8.3.4. Ef um er að ræða framboð þar sem frambjóðandi er sjálfkjörinn skal gilda já eða nei, ekki auðir seðlar. Frambjóðandi þarf að fá minnst 50% atkvæða jákvæð til að vera kjörinn.
8.4. Ófylltar stöður.
8.4.1. Takist ekki að fylla í stöðu á kjördegi skal nemendaráð auglýsa stöðuna lausa og skipa í hana í framhaldi af því.
8.4.2. Við brotthvarf úr embætti skal endurskoða kosningu með tilliti til næsthæsta frambjóðanda í stöðuna ellegar auglýsa stöðuna lausa.
9. Laun
9.1. Hver starfandi nefndarmeðlimur skal fá einn miða á árshátíð. Gildir þessi liður ekki fyrir þá sem ekki geta sýnt fram á 80% mætingarskyldu. Því skulu nefndir halda fundargerðarbók sem vottar mætingu og störf nefndarmeðlima.
9.2. Meðlimir nemendaráðs fá að fara inn á alla atburi/uppákomur á vegum N.F.B. endurgjaldslaust. Gildir þetta hvort sem er að ræða böll eða aðrar uppákomur. Hér á einnig við 80% mætingarskylda.
9.3. Félaginu er óheimilt að greiða laun til nemenda fyrir vinnu aðra en þá sem lögin kveða um nema það sé samþykkt á Allsherjarráðsfundi og ef nemandi er ekki í N.F.B.
9.4. Í lok hverrar vorannar eða lok starfsárs nemendaráðs hefur nemendaráð leyfi til að fara út að borða á kostnað nemendafélagsins fyrir upphæð sem nemur 5.000 kr,- á hvern nemendaráðsmeðlim.
10. Sjóðir
10.1. Alla sjóði N.F.B. skal geyma á bankareikningi.
10.2. Nemendasjóður er myndaður af félagsgjöldum nemenda. Hann skal notaður til að standa undir kostnaði við hagsmunastörf og til að styrkja og fjármagna félagslíf skólans. Nemendasjóðurinn er í gæslu gjaldkera N.F.B. og formanns.
10.3. Allt bókhald skal sent löggiltum endurskoðanda til yfirferðar.
11. Lög
11.1. Lögum þessum má aðeins breyta á aðalfundi eða á aukaaðalfundi.
11.2. Lagabreytingatillögur skulu berast nemendaráði tveim dögum fyrir aðalfund. Þær skulu settar upp á auglýsingatöflur, nemendum til kynningar og liggja til sýnis. Á aðalfundi skulu einingus löglega framkomnar tillögur vera til umfjöllunar. Til að lagabreytingatillögur öðlist gildi þarf samþykki helmings fundarmanna.
11.3. N.F.B. verður ekki lagt niður nema með samþykki á tveimur löglega boðuðum aðalfundum í röð, þá með 4/5 hlutum greiddra atkvæða eða meira í bæði skiptin. Atkvæðagreiðsla skal vera skrifleg. Fyrri aðalfundur mun ákveða afdrif eigna N.F.B., en sú ákvörðun mun þó ekki taka gildi fyrr en á seinni aðalfundi, samþykki sá fundur einnig slit félagsins. Lagt er til að fundargerðir og önnur gögn N.F.B. sem ekki flokkast undir trúnaðarmál verði sett til varðveislu á Landsbókasafni. Skjölum varðandi trúðaðarmál ber að eyða í endurvinnslu.
11.4. Lög þessu öðlast þegar gildi og eru önnur lög félagsins þar með úr gildi.
Reykjvík apríl 2007
|