Skip to content
Þú ert hér: Forsíða arrow Brautir arrow Íþróttabraut arrow FramaBraut
FramaBraut
Frá haustönn 2007 verður skipulagt nám fyrir afreksíþróttafólk framtíðarinnar í handknattleik, knattspyrnu og körfuknattleik í boði við Fjölbrautaskólann í Breiðholti. Þetta nám er nefnt FramaBraut.

 

Þetta er kjörið tækifæri fyrir afreksíþróttafólk að tengja saman nám og íþróttir. Nemendurnir munu fá þrjár æfingar á viku á skólatíma undir stjórn frábærra þjálfara.

Eingöngu verður um einstaklingsþjálfun að ræða, en nemendurnir munu æfa áfram og keppa með sínum íþróttafélögum. Æfingarnar koma í stað allrar verklegrar kennslu í íþróttum í skólanum. Nemendur á FramaBraut geta stundað nám á öllum brautum skólans. Kröfur til afreksíþróttanemenda í FB:

  • Nemendur verða að vera efni í afreksfólk í íþróttum. Þeir þurfa að fá meðmæli frá íþróttafélagi.
  • Gerð er krafa um að nemendur hafi 95% skólasókn. Nemendur munu fá leyfi fyrir keppnisferðum.
  • Nemendur þurfa að standast eðlilega námsframvindu – ljúka u.þ.b. 15 einingum á önn.
  • Afreksíþróttanemendur í FB mega ekki nota áfengi, tóbak eða önnur vímuefni.
  • Allir sem fá inngöngu í afreksíþróttir í FB skrifa undir samning með þessum reglum.
  • Afreksíþróttanemendur fá sérstakan umsjónar­kennara sem fylgist með framvindu náms hjá þeim og aðstoðar þar sem við á.
  • Hver nemandi greiðir 40.000 krónur aukalega á önn fyrir að vera þátttakandi í þessu afreksíþróttanámi.

Umsóknareyðublað fyrir þá sem vilja sækja á FramaBraut í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti er hægt að nálgast hér. Nemendur þurfa að prenta eyðublaðið, fylla það út og fara með það til síns íþróttafélags og koma því svo á skrifstofu FB.

Ekki er hægt að sækja um FramaBrautarnámið rafrænt.

ATHUGIÐ að eyðublaðið er á PDF formi og því verður að vera búið að setja upp Adobe Reader á tölvuna ykkar.

Smellið hér til að ná í Adobe Reader

 
Austurberg 5 | 111 Reykjavík | Sími 570 5600 | Símbréf 567 0389 | Tölvupóstur: Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það

Íþróttakennarar FB

joa.jpg

Jóhann Arnarson

jas.jpg

Jörundur Áki Sveinsson

kaa.jpg

 Kristín Anna Arnþórsdóttir 

sva.jpg

  Svava Ýr Baldvinsdóttir

tm.jpg

Torfi Magnússon

GRÁR KASSI

Sérðu GRÁAN kassa og ekki efsta hluta síðunnar. Smelltu þá hér.