Brautir
Rafvirkjabraut
Brautarlýsing grunndeildar rafiðna | Brautarlýsing grunndeildar rafiðna |
|
Breyttar lýsingar 14. ágúst 2006 Nýtt kerfi hefur verið tekið upp í rafvirkjanámi og er lýsing á því hér að neðan. Skipan námsNámí rafiðngreinum er skipulagt með hliðsjón af lokamarkmiðum semendurspegla kröfur um þekkingu og færni iðnsveina í hinum ýmsustarfsgreinum á sviði rafiðnaðar. Grunnnám rafiðna er 80 einingar ogtekur að jafnaði 4 annir í skóla. Nemendur sem innritast í grunnnámrafiðna þurfa að hafa lokið skyldunámi í samræmi við aðalnámskrágrunnskóla og einnig lokið samræmdum lokaprófum í íslensku ogstærðfræði og náð tilskildum lágmarksárangri skv. ákvæðum 2. gr.reglugerðar um innritun nemenda í framhaldsskóla. Nám í kvikmyndasýningarstjórn tekur umtvö og hálft ár að meðtöldu grunnnámi rafiðna. Að loknu grunnnámi tekurvið starfsnám á vinnustað að ígildi 12 eininga. Það felur í sér aðlágmarki 300 sýningartíma sem dreifist á sex mánuði. Nemendursem innritast í sérnám til sveinsprófs í rafeindavirkjun,rafveituvirkjun, rafvélavirkjun og rafvirkjun þurfa að hafa lokiðgrunnnámi rafiðna. Námtil sveinsprófs í rafiðngreinum tekur að jafnaði 4 ár og skiptist í námí skóla og starfsþjálfun á vinnustað. Um er að ræða tvenns konarskipulag : 1. Verknámsleið þar sem meðalnámstími í skóla er 7 annir að meðtöldu grunnnámi auk 24 vikna starfsþjálfunar.Írafvirkjun og rafvélavirkjun er hægt að velja á milli námsleiða. Írafveituvirkjun er aðeins um að ræða samningsbundið iðnnám og írafeindavirkjun er námið eingöngu samkvæmt verknámsleið. Mikil skörun er milli starfa í rafveituvirkjun, rafvélavirkjun og rafvirkjun og námið þvíað stórum hluta sameiginlegt. Sérhæfing hverrar greinar á sér aðeinsstað á lokaönn námsins sem og í starfsþjálfun á vinnustað. Þetta leiðirtil þess að það er auðveldara fyrir svein í einni grein að afla sérstarfsréttinda í annarri grein sterkstraums en áður hefur verið. Um alla starfsþjálfun samkvæmt framansögðu gilda ákvæði gildandi reglugerðar um námssamninga og starfsþjálfun.
Brautarlýsing - grunnnám rafiðna (GR) 80 ein.
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Eftirfarandi rafiðngreinar eru í boði við Fjölbrautaskólann í Breiðholti:
Grunndeild rafiðna - nýja brautin - fjórar annir - gildir frá ágúst 2006
Rafvirkjabraut - nýja brautin sem gildir fyrir þá sem hófu nám eftir 2006
Rafvirkjabraut - gamla brautin sem gildir fyrir þá sem hófu nám fyrir 2006
Prentvæn útgáfa á brautarlýsingu Rafvirkjabrautar á PDF formi
Uppröðun á áföngum á Rafvirkjabraut - meistaraleið
Uppröðun á áföngum á Rafvirkjabraut