Skip to content
Þú ert hér: Forsíða
Starfsbraut

Starfsbraut Fjölbrautaskólans í Breiðholti er einkum ætluð nemendum sem notið hafa verulegrar sérkennslu í grunnskóla eða stundað nám við sérskóla og útskrifast samkvæmt 48. grein grunnskólalaganna.
Markmiðið með náminu er að veita nemendum með ólíkar menntunarþarfir menntun.
Að nemandi:
•    fái einstaklingsmiðuð námstækifæri
•    auki hæfni sína til að takast á við fjölbreytt viðfangsefni daglegs lífs, í námi, tómstundum, vinnu og varðandi búsetu
•    þroski með sér frumkvæði, sjálfstæði og ábyrgð
•    fái tækifæri til að takast á við ný og ögrandi viðfangsefni
•    nýti sér þá fjölbreyttu möguleika sem framhaldsskólinn býður uppá s.s. í samskiptum, námi og félagslífi
•    fái tækifæri til að tengja saman nám og starfsþjálfun, í skóla og á vinnustað
Áhersluþættir
Áhersluþættir Starfsbrautar FB eru:
•    Tölvur- og upplýsingatækni
•    List- og verkgreinar
•    Íþróttir og heilsuefling
•    Starfsnám
Auk þess sem kenndar eru hefðbundnar námsgreinar s.s íslenska, stæðrfræði, enska, landafræði, náttúrufræði, saga, heimilisfræði, lífsleiki og fl.
Kennsluhættir
•    Lögð er áhersla á fjölbreytta kennsluhætti sniðna að þörfum, áhuga og getu nemanda.
•    Nám getur farið fram jafnt innan skóla sem utan.
•    Unnið er samkvæmt einstaklingsmiðuðum námsáætlunum sem unnar eru í samráði við nemanda og foreldra/forráðamenn.
Í einstaklingsáætlun er skilgreint hvernig skal undirbúa nemanda þannig að hann verði sjálfstæður þátttakandi í þjóðfélaginu fremur en óvirkur þiggjandi.

 

Smellið hér til að fara á vef Starfsbrautar FB

 
Austurberg 5 | 111 Reykjavík | Sími 570 5600 | Símbréf 567 0389 | Tölvupóstur: Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það

Upplýsingaskjár

Skrifstofa

Vefpóstur

Inna : Nemendur

Dreifnámsvefur

Kynning á FB

pastarchives.jpg

 

frumskogur.jpg

 

User Menu

GRÁR KASSI

Sérðu GRÁAN kassa og ekki efsta hluta síðunnar. Smelltu þá hér.

Nýtt á Wiki vef FB

Fréttir frá starfsbraut

/www/fb.dreifnam.is/htdocs/cache//558c0e1f819c9f50f6911d1a419218f296851fb6.spc is not writeable