Heildun, runur, raðir og fleira.
Undanfari: STÆ 4036
Í áfanganum er fjallað um heildareikning, innsetningu, hlutheildun og liðun í stofnbrot. Nemendur fá þjálfun í því hvernig ákveðið heildi er túlkað sem flatarmál. Nemendur reikna út flatarmál svæða sem afmarkast af gröfum falla. Reikningar á rúmmál snúða þegar flatarmáli er snúið um x-ás eða línur samsíða honum. Þeir læra um deildajöfnur af fyrsta stigi, endanlegar og óendanlegar runur og raðir. Þekki arkarföllin og afleiður þeirra. Áhersla er lögð á stærðfræðileg vinnubrögð. Unnið er með stofnföll, óákveðið og ákveðið heildi. Undirstöðusetning deilda- og heildareiknings og sönnun hennar. Hagnýting heildareiknings. Deildajöfnur af fyrsta stigi. Runur og raðir. Þrepun. Arkarföll og afleiður þeirra.

