STÆ 4636

Undanfari: STÆ 3636

Í áfanganum er fjallað um stofnföll, heildun, flatarmál undir ferlum reiknað. Speglun, snúningur og hliðrun rúmfræðilegra mynda. Samskeytingar og rennispeglun. Fjarvídd og mælikvarðar t.d af landabréfum. Gullinsnið, hlutföll í listum svo sem í myndlist og tónlist. Klassískar sannanir. Flatarmyndir og þrívíð rúmfræði. Verkefni tengd bygg­ing­ar­list. Nemendur kynnist stofnföllum, heildun og tengslum þess við reikning á flatarmáli undir ferlum. Þeir kynnist rúmfræðilegum speglunum og hliðrunum, fjar­vídd og hlutfallsmælikvörðum. Nemendur kynnist menningarsögulegum hlutföllum og mynstrum, þekki klassiskar sannanir í rúmfræði. Nemendur vinni verkefni, öðlist sjálfs­traust og ánægju við lausn stærðfræðiverkefna.