Algebra I
Í áfanganum læra nemendur undirstöðuatriði talnareiknings og bókstafareiknings. Þeir læra um hlutfallshugtakið og leysa öll einföld dæmi um prósentureikning. Nemendur þjálfast í röksemdafærslum og nýti þá m.a. við lausnir verkefna og þrauta. Undirstöðuhugtök hnitarúmfræði og geti m.a. reiknað fjarlægð milli punkta og fundið hnit miðpunkts striks. Þekki jöfnu beinnar línu, skilgreiningu á hallatölu og geti teiknað beinar línur í rétthyrnda hnitakerfinu. Nái tökum á samsíða línum og hornréttum línum. Talnareikningur. Bókstafareikningur (algebra). Uppsettar jöfnur og óuppsettar jöfnur. Þrautalausnir. Hlutfallareikningur, prósentur og vextir. Verkefni í tengslum við rétthyrnda hnitakerfið, þ.m.t. jafna beinnar línu, samsíða línur, hornréttar línur og fjarlægð milli punkta.

