ÍÞR 1212 eða 1412

Íþróttir og heilsurækt I

Áfanginn er verklegur. Nemendur fá alhliða hreyfireynslu með fjölbreytni að
leiðar­ljósi. Lögð er áhersla á fjölbreytta upphitun, styrkjandi og liðkandi æfingar, auk alhliða þolþjálfunar og leikja. Byggt er á þeim grunni sem skapast hefur í grunn­skólanum. Samhliða verklegri útfærslu fræðast nemendur um íþróttir, líkamsrækt og heilsuvernd. Nemendur eru hvattir til að rækta líkama sinn sér til heilsubótar og ánægju.