FÉL 5036

Rannsóknarverkefni

Undanfari: FÉL 4036

Í áfanganum fá nemendur þjálfun í að vinna sjálfstætt að rannsóknarverkefni í félagsfræði og læra að beita öguðum vinnubrögðum og skrifa um það rannsóknarskýrslu. Nemendur vinna rannsóknarverkefni þar sem þeir fá þjálfun í að beita rannsóknaraðferðum félagsvísindanna og sýna öguð vinnubrögð með því að fylgja vísindalegu vinnuferli. Nemendur velja félagsfræðilegt viðfangsefni í samráði við kennara. Annað hvort velur nemendahópurinn sér sameiginlegt viðfangsefni eða hver nemandi velur sér verkefni. Nemendur beita a.m.k. tveimur ólíkum rannsóknaraðferðum í verkefninu.