Kynningarfundur fyrir forráðamenn nýnema

31. ágúst

Við bjóðum foreldra/forráðamenn nemenda velkomna til kynningarfundar í skólanum miðvikudaginn 5. september kl. 17:30. Á fundinum munum við kynna skólann og sýna ykkur hvar og hvernig þið nálgist upplýsingar um skólastarfið og gengi barna ykkar í skólanum.

Dagskrá kvöldsins

Í Sunnusal

  • Ávarp skólameistara, Guðrúnar Hrefnu Guðmundsdóttur
  • Ávarp fulltrúa foreldraráðs

Stefán Benediktsson aðstoðarskólameistari kynnir umsjónarkennara sem vísa til stofu þar sem foreldrar og forráðamenn funda með þeim.

Gönguferð um skólann í fylgd umsjónarkennara. Bókasafn skólans og námsver verður opið og er fólk velkomið í heimsókn.

Á kennarastofu
Óformlegar umræður yfir kaffi og meðlæti. Auk ræðumanna og umsjónarkennara er þetta starfsfólk reiðubúið til viðræðna í kaffinu:

  • Alma Guðmundsdóttir sviðsstjóri starfsnámssviðs
  • Ásgerður Bergsdóttir félagsmálafulltrúi
  • Berglind Halla Jónsdóttir áfangastjóri
  • Elísabet Vala Guðmundsdóttir námsráðgjafi
  • Guðrún G Gröndal sviðsstjóri listnámssviðs
  • Magnús Ingvason félagsmálafulltrúi
  • Ólöf Helga Þór námsráðgjafi
  • Sesselja Pétursdóttir námsráðgjafi
  • Sigríður Anna Ólafsdóttir fagstjóri framhaldsskólabrautar
  • Stefán Andrésson áfangastjóri
  • Sunneva Filipusdóttir námsversstjóri
  • Sæmundur Rögnvaldsson  sviðsstjóri bóknámssviðs
  • Fulltrúar NFB – nemendafélags FB

Comments are closed.