Dagskólinn
- Stundatöflur verða afhentar miðvikudaginn 15. ágúst kl. 9 – 13.
Ath! Stundatöflur á starfsbraut verða afhentar mánudaginn 20. ágúst kl. 16:00 í stofu 17. - Töfluviðtöl verða fyrir útskriftarefni miðvikudaginn 15. ágúst frá kl. 13 – 16, en fyrir aðra nemendur fimmtudag og föstudag frá kl. 8 – 16.
- Skólasetning verður mánudaginn 20. ágúst kl. 9. Að henni lokinni munu nýnemar fá kynningu á skólanum og hitta umsjónarkennara sinn.
- Kennsla í dagskóla hefst samkvæmt stundaskrá miðvikudaginn 22. ágúst.
Kvöldskólinn
- Innritun í kvöldskóla hefur staðið yfir á netinu frá því í byrjun júlí og er enn í gangi.
- Innritað verður hér í skólanum fimmtudaginn 23. ágúst kl. 17 – 19 og verður þá hægt að fá aðstoð hjá fagstjórum og náms- og starfsráðgjöfum.
- Kennsla í kvöldskóla hefst mánudaginn 27. ágúst. Athugið mjög vel að kennslan hefst í 2. viku annarinnar!
Kennarafundur verður mánudaginn 20. ágúst kl. 10.

