14. – 21. mars valvika í dagskóla

14. mars

Nemendur dagskóla eiga að velja áfanga fyrir haustönn 2011 í þessari viku. Gert er ráð fyrir að nemendur fari inn í Innuna og velji þar sjálfir. Ætli nemandi ekki að vera í skólanum í haust á hann ekki að velja.

Þetta er breyting frá fyrra fyrirkomulagi vals í skólanum og nauðsynlegt að nemendur taki þátt. Hafi nemandi ekki valið í valvikunni getur hann ekki verið öruggur um skólavist á næstu önn.

Allar leiðbeiningar vegna valsins eru komnar inn á heimasíðuna undir Námið – Val fyrir næstu önn: http://www.fb.is/namid/val-fyrir-naestu-onn/

Efsta skjalið þar, Leiðbeiningar um innslátt á vali í Innunni, gefur allar nauðsynlegar upplýsingar.

Lendi nemendur í einhverjum vandræðum verða áfangastjórar og náms- og starfsráðgjafar til viðtals alla vikuna til að hjálpa þeim.

Comments are closed.